Velkomin í Hestasjoppuna
Markmið okkar er einfalt:
Að gera íslensku hestafólki auðveldara að nálgast vandaðar vörur og fóður í sérflokki.


Hestasjoppan
Hjá Hestasjoppunni leggjum við áherslu á gæði, fagmennsku og persónulega þjónustu. Við veljum vandlega þau vörumerki sem við bjóðum og viljum að hver vara hafi tilgang – hvort sem hún stuðlar að betri heilsu, aukinni vellíðan eða auðveldar daglega umhirðu og þjálfun.
Í vöruúrvalinu okkar finnur þú meðal annars hágæða fóður, bætiefni, umhirðuvörur og fjölbreyttan búnað fyrir hesta og knapa frá vörumerkjum á borð við Cavalor, Catago, Equipage, Horse Guard og Bense & Eicke.
Hestasjoppan
Hestasjoppan er íslensk hestavöruverslun sem spratt úr ástríðu fjölskyldunnar fyrir hestum og metnaði fyrir því að bjóða hestafólki vandaðar vörur á góðu verði.
Við trúum því að vellíðan, heilsa og árangur hestsins haldist í hendur. Hvort sem þú stundar hestamennsku þér til ánægju, ert í keppni eða vinnur með hesta alla daga, þá skiptir máli að hafa aðgang að vörum sem þú getur treyst.

